
Eitt kerfi.Allt húsið.
ABB i-bus KNX liðar í töflunni og Busch-Jaeger takkar og skjáir á veggnum. Ljós, gardínur og hiti tala saman á einum streng, í íbúðinni, einbýlishúsinu eða skrifstofunni.
Í venjulegri lögn fer straumurinn um rofann. Í KNX sendir takkinn skilaboð og liðinn í töflunni gerir rest.
- KNX
- opinn staðall fyrir hús og byggingar
- ABB i-bus
- liðar á DIN skinnu í töflunni
- Busch-Jaeger
- takkar og skjáir á veggnum

Liðarnir vinna verkið. Í töflunni.
Ljós, gardínur og hiti eru tengd á liða í töflunni og takkarnir á veggnum senda aðeins skilaboð um KNX strenginn. Þegar breyta þarf virkni er það forritað upp á nýtt, ekki lagt aftur.
Rofaliðar
Fjórir, átta eða fleiri útgangar fyrir ljós og tengla.
Gardínuliðar
Stýra gardínum og screen tjöldum, upp, niður og stöðu.
Dimmar
Deyfa ljós, meðal annars með 1 til 10 V stýringu.
Spennugjafi og tengi
Spennugjafi, línutengi og IP tengi halda kerfinu saman.

Takkar og skjáir. Í sama stíl.
Busch-Jaeger smíðar KNX takkaskynjara, hitastilla og snertiskjái í sömu rammaseríum og venjulegu rofana. Allt á veggnum passar saman, hvort sem það kveikir ljós eða stýrir öllu húsinu.
Snertiskjáir
Yfirlit yfir ljós, hita og gardínur í hverju herbergi.
Takkaskynjarar
Hver takki getur kveikt ljós, sett senu eða dregið fyrir.

Hver ofn fær sinn loka. Hvert herbergi sitt hitastig.
Lokar á ofna og gólfhitagrindur eru tengdir hitaliðum í töflunni. Hitastillir í hverju herbergi segir til og kerfið opnar og lokar, svo hitinn fer þangað sem hans er þörf.
Ofnlokar
Rafknúnir lokar og millistykki á algengar ofnlokagerðir.
Hitaliðar
Sex eða tólf rásir í töflunni, ein fyrir hvern loka.
Úr töflunni og af veggnum.








ABB og Busch-Jaeger. Eitt fyrirtæki.
Busch-Jaeger er hluti af ABB. KNX búnaðurinn fer í sömu töflur og sömu rammaseríur og annar búnaður frá þeim.
KNX í næsta verk?
Sendu okkur efnislista eða teikningu og við sendum þér tilboð í liða, kerfisbúnað og það sem fer á vegginn.
- Netfang
- rafport@rafport.is
- Sími
- 580 1900
- Lager
- Auðbrekka 9-11, Kópavogi

