free@home

Allt heimilið.Ein snerting.

Busch-free@home stýrir ljósum, gluggatjöldum, hita og dyrasíma í einu kerfi, af skjánum á veggnum, rofanum eða símanum. Sett upp í vafra, án forritunar.

Svona virkar það
Björt stofa með free@home rofa á veggnumPrófaðu: ýttu á skjáinn
Stofafree@home
21,5°
Svona virkar það

Þrjú lög, eitt kerfi.

Rofarnir á veggnum tala við miðstöðina, og miðstöðin segir liðunum í töflunni hvað á að gera. Allt fæst í Rafport.

01

Á veggnum

Rofar, skjáir og skynjarar

Það sem fólkið í húsinu snertir: Trevion og Tenton rofar, SmartTouch og OneTouch skjáir og hreyfiskynjarar.

02

Miðstöðin

System Access Point

Heldur utan um allt kerfið, tengir appið og raddstýringu, og er sett upp í vafra án forritunar.

03

Í töflunni

Liðar á DIN skinnu

Liðarnir sem kveikja, dimma, draga gluggatjöld og stýra hita, ofan í greinatöflunni.

Par skoðar spjaldtölvu í íbúð í endurnýjun
Nýbygging eða endurnýjun

Byrjaðu smátt eða allt í einu.

free@home er til bæði með vír og þráðlaust, svo kerfið hentar jafnt í nýbyggingu og eldra hús. Taktu eitt herbergi í dag og bættu við þegar þér hentar, eða settu allt heimilið upp í einu.

Skipulag

Teiknaðu heimilið.

Skipulagstól Busch-Jaeger hjálpar þér að raða free@home upp herbergi fyrir herbergi og sjá hvað þarf. Sendu okkur niðurstöðuna og við gerum tilboð.

Rafport × free@home

Tilbúin að byrja?

Sendu okkur teikningu eða herbergjalista og við sendum þér tilboð í allt kerfið.

LagerAuðbrekka 9-11, Kópavogi