
Húsið sérum sig sjálft.
Loxone stýrir ljósum, hita, gluggatjöldum, hljóði og aðgangi úr einni miðstöð. Rafport er umboðsaðili Loxone á Íslandi, með yfir 120 Loxone vörur og ráðgjöf fyrir rafvirkja.
Allt húsið talar sama mál.
Snjallheimili eru oftast safn stakra tækja, hvert með sitt eigið app. Loxone er eitt heilt kerfi: Miniserver í töflunni, rofar og skynjarar um allt hús og eitt app. Ljósin, hitinn og gluggatjöldin vinna saman og vita hvort einhver er heima.

- 2008
- Stofnað í Kollerschlag í Austurríki
- 120+
- Loxone vörur í vörulista Rafport
- 1
- Miniserver stýrir öllu húsinu
Hvað gerir Loxone?
Rafvirkinn setur kerfið upp eftir því hvernig þú býrð. Eftir það sér húsið um sig og þú grípur bara inn þegar þú vilt.
Lýsing
Ljósið kviknar þegar þú kemur inn og slokknar þegar þú ferð. Senur fyrir morgun, kvöld og bíókvöld.
- Viðveruskynjarar í loft
- Deyfing og DALI
- LED borðar og RGBW ljós
Einfalt að leggja. Einfalt að stækka.
Eitt kerfi frá töflu út í síðasta rofa. Miniserver í töflunni, Tree þar sem lagt er, Air þar sem ekki er hægt að leggja, og Extensions fyrir allt hitt.
Miniserver
Miniserver situr í töflunni og stýrir öllu húsinu. Hann vinnur úr gögnunum á staðnum, svo kerfið gengur án skýjaþjónustu.
- Festing
- DIN skinna, 9 einingar
- Inngangar
- 8 stafrænir, 4 hliðrænir
- Útgangar
- 8 stafrænir
- Compact
- 6 einingar á DIN skinnu

Allt húsið á einum skjá.
Touch Pure Display og Wall Display sýna ljós, hita, skugga og tónlist á veggnum, þar sem allir á heimilinu ná til.
Skoða skjáiSjáðu kerfið í notkun.
Allt í Loxone verkið.
ExtensionsDimmer ExtensionDeyfing á ljósarásum
MiniserverPower Supply 4.2ASpennugjafi 24V í töfluna
TreeTouch TreeRofi fyrir ljós, skugga og tónlist
ExtensionsRelay ExtensionLiðar fyrir ljós og tæki
MiniserverMiniserverMiðstöðin á DIN skinnu
ExtensionsDALI ExtensionTengir DALI lýsingu
TreeRoom Comfort Sensor TreeHiti og raki í hverju rými
ExtensionsKNX ExtensionBrú yfir í KNX kerfi
Ertu að skipuleggja Loxone hús?
Sendu okkur teikningu eða lýsingu á verkinu. Við förum yfir efnisþörfina með þér og sendum tilboð í Miniserver, Extensions og allt sem fer út í húsið.
- Netfang
- rafport@rafport.is
- Sími
- 580 1900
- Verslun og lager
- Auðbrekka 9-11, Kópavogi





