Snjallt ljós.Sömu lagnir.
Plejd gerir venjulegt heimili snjallt án nýrra lagna. Rafvirkinn setur litla einingu í dósina á bak við rofann og þú stýrir ljósinu með rofanum eða úr símanum.
Engar nýjar lagnir og ekkert brotið úr veggjum. Bara ljós sem gerir það sem þú vilt.
- Í dósinni
- sem er þegar á veggnum
- 2 milljónir+
- Plejd kerfa í notkun
- Svíþjóð
- hannað og framleitt í Mölndal


Rofinn verður kyrr. Ljósið verður snjallt.
- 01
Í dósina
Rafvirkinn setur litla Plejd einingu í veggdósina á bak við rofann, eða við ljósið sjálft. Rofinn á veggnum virkar áfram eins og áður.
- 02
Þráðlaust á milli
Einingarnar tala saman í Bluetooth neti. Þráðlaus rofi fer þangað sem hann á heima, án þess að draga nýjan kapal.
- 03
Stillt í appinu
Senur, tímastýring eftir sólarupprás og sólsetri og stýring úr símanum. Engir smárofar og engin sérþjálfun.

Ljósið fylgir deginum.
Láttu ljósin kvikna við sólsetur og slokkna þegar þú ferð út. Ein sena fyrir kvöldmatinn, önnur fyrir háttinn, og venjulegi rofinn kallar á þær báðar.
Allt sem þarf, í einu kerfi.
Sett upp eins og venjulegur dimmer.
Tengt eins og hefðbundinn búnaður
Sama vinna og við venjulegan dimmer eða liða. Uppsetningin sjálf fer fram í appinu.
Leysir erfiðar lagnir
Þráðlaus rofi og hnappaeining koma í stað kapals sem erfitt er að draga.
Stækkar eftir þörfum
Byrjaðu með eitt herbergi og bættu við einingum seinna. Kerfið tekur við þeim.

Plejd í næsta verk?
Sendu okkur efnislista eða teikningu og við sendum þér tilboð í allt sem þarf.
- Netfang
- rafport@rafport.is
- Sími
- 580 1900
- Lager
- Auðbrekka 9-11, Kópavogi







