
Strengurinnsem beygir sig.
Powerflex jarðstrengurinn frá Top Cable er með fínþættum kopar og þjáll í lögn. Hann fer í jörð, í rör eða utanhúss, frá töflunni út í bílskúr, að hleðslustöð eða heitum potti.
Strengur sem fer í jörð þarf að þola raka, frost og átök. Og hann þarf að vera þægilegur í lögn, því einhver þarf að draga hann.
- Spánn
- fjölskyldufyrirtæki, verksmiðjur í Evrópu
- 0,6/1 kV
- Powerflex jarðstrengur
- Flokkur 5
- fínþættur og mjúkur koparleiðari

Mjúkur í lögn. Sterkur í jörðu.
Powerflex er með fínþættum koparleiðurum, XLPE einangrun og PVC kápu. Hann beygir sig fyrir horn og inn í töflu án átaka, og má fara beint í jörð, í rör eða utanhúss án frekari varnar.
Fínþættur kopar
Leiðari í flokki 5, svo strengurinn er þjáll í lögn.
XLPE einangrun
Krosstengt pólýetýlen undir sterkri PVC kápu.
Í jörð eða rör
Má grafa beint, draga í rör eða leggja utanhúss.
Þolir vatn
Gerður fyrir raka, líka þar sem hann liggur í vatni.

Frá töflunni út í bílskúr.
Heimtaug að bílskúr, strengur að hleðslustöð, varmadælu eða heitum potti. Þar sem strengurinn fer út úr húsinu og ofan í jörð er Powerflex á heimavelli.
Hleðslustöðvar
Sér grein frá töflunni að hleðslustöðinni.
Útihús og pottar
Strengur í jörð að bílskúr, geymslu eða heitum potti.

Prófað á keflinu. Áður en það fer af stað.
Top Cable er spænskt fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir strengi fyrir byggingar, iðnað og orkuver um allan heim. Allar verksmiðjurnar eru í Evrópu og aðallagerinn er í Barcelona.
Hvert kefli prófað
Top Cable segist prófa öll strengjakefli í framleiðslunni.
Framleitt í Evrópu
Allar verksmiðjur Top Cable eru í Evrópu.
Allar stærðir. Þrír eða fimm leiðarar.
Strengur í næsta verk?
Sendu okkur efnislista með sverleikum og lengdum og við sendum þér tilboð í strenginn.
- Netfang
- rafport@rafport.is
- Sími
- 580 1900
- Lager
- Auðbrekka 9-11, Kópavogi




