Golfmót Rafport
Golfmót Rafport fór fram í Þorlákshöfn föstudaginn 11. september. Shotgun ræsing, veitingabíll á vellinum og verðlaunaafhending á Black Sand Hotel. Hér eru úrslitin.

Föstudaginn 11. september héldum við Golfmót Rafport á golfvellinum í Þorlákshöfn. Hópurinn hittist í Rafport í Auðbrekku um hádegið og rútan lagði af stað kl. 12:00, en aðrir keyrðu sjálfir og mættu beint í golfskálann kl. 13:00.
Klukkan 14:00 var ræst út á öllum teigum samtímis og spilaðar 18 holur. Veitingabíll var á ferðinni allan hringinn, svo enginn þurfti að fara svangur eða þyrstur á milli teiga.
Að leik loknum færðum við okkur yfir á Black Sand Hotel, þar sem boðið var upp á kvöldverð og drykki og verðlaunin voru afhent. Rútan flutti svo þá sem héldu heim aftur í bæinn um kvöldið.
Úrslit
- 1. sæti: Guðfinnur og Guðjón
- 2. sæti: Garðar Jóhannsson og Stefán Guðni
- 3. sæti: Gunnar Nelson og Sandri
Aukaverðlaun
- Lengsta drive: Sindri Gunnarsson
- Beinasta drive: Kristinn Heimisson
- Nándarverðlaun: Gunnar Nelson, Elvar Snær og Georg Fannar
Við óskum sigurvegurunum til hamingju og þökkum öllum sem mættu kærlega fyrir frábæran dag. Takk líka til starfsfólksins á vellinum í Þorlákshöfn og á Black Sand Hotel fyrir góðar móttökur. Myndir frá deginum eru hér fyrir neðan.

